
Básar er golfæfingasvæði í Grafarholti. Þar eru aðstæður eins og þær gerast bestar til golfæfinga í heiminum. Hér er um að ræða byltingu fyrir íslenska kylfinga, þar sem nú er mögulegt að æfa utan dyra allan ársins hring. Básar eru flóðlýstir og myrkur því ekki fyrirstaða æfinga. 73 básar á þremur hæðum og næg bílastæði. Mikilvægast er samt að við blasir 5 hektara svæði til að taka á móti golfboltum. Tvær brautir og sjö flatir í mismunandi fjarlægðum til að slá á.
Í Básum er að finna eina fullkomnustu golfkennsluaðstöðu landsins. Upphitað einkarými, þar sem hægt að hafa opnar dyr út á æfingasvæðið. Sé vont veður, er dyrunum einfaldlega lokað og kennslunni haldið áfram innan dyra.
Í Básum er að finna fullkomnasta tölvukerfi sem völ er á til myndbandsupptöku á golfsveiflunni. Scope kerfið er hágæða upptökubúnaður frá Þýskalandi. Kerfið er sannkölluð bylting í golfkennslu hér á landi. Scope kerfið gerir nemanda kleift að sjá mynd af sér á skjá sem liggur á gólfinu fyrir framan sig. Það tekur um þrjár sekúndur að fá endursýningu af sveiflunni en einnig er hægt að hafa lifandi mynd. Því getur nemandi séð sveifluna sína og lagað þau atriði sem þarf að laga með því að horfa á skjáinn. Kerfið getur sýnt 10 mismunandi sveiflustöður, hægt er að bera saman tvær sveiflur og einnig er hægt að setja inn texta og línur til að hjálpa nemandanum. Eftir að tímanum líkur eru allar myndir og upplýsingar settar á disk og getur nemandi því kíkt á sveifluna heima hjá sér í tölvunni.
Upphitaðir Básar halda hita á kylfingum yfir vetrarmánuðina. Örlítið frost er engin fyrirstaða.
Boltasölukerfið er eitt það fullkomnasta sem færst í heiminum í dag. Framleiðandi er sænska fyrirtækið Range Servant. Boltavélar eru á öllum hæðum. Hægt er að kaupa fötu í afgreiðslunni í hvert sinn, en bestu kjörin fást með því að kaupa boltakort í Básum.
Allir eru velkomnir í Bása. Þú þarft ekki að vera félagsmaður í golfklúbbi, hafa forgjöf eða eiga kylfur. Golfkylfur eru lánaðar án endurgjalds. Básar eru kjörinn staður fyrir alla kylfinga og golfáhugamenn, jafn þá sem eru að taka fyrstu skrefin sem og lengra komna.
Sími í Básum er 555 7202



