facebook

Meginmarkmið Pro Golf er að bjóða nemendum tækifæri til að læra golfíþróttina frá grunni á skipulagðan hátt. Að læra golf er einfalt! Kennsluaðferðir Pro Golf golfskólans eru hnitmiðaðar og einfaldar. Við viljum kenna nemendum okkar á sem einfaldastan og árangursríkastan hátt, fylgjast vel með framför nemendanna og fylgja þeim eftir. Alltaf er tekið tillit til einstaklingssins í allri þjálfun hjá golfskólanum. Skýr markmið golfkennslunnar í golfskólanum eru í fjórum meginskrefum sem við viljum kalla A-B-C-D kennslukerfið. Námsstigi ProGolf miðar að því að leiða nemendur golfskólans í gegnum þessi 4 skref með réttum hætti.
  

A
GRUNNATRIÐI
• Setja sér markmið
• Öðlast þekkingu á leiknum
• Velja og leika með réttum kylfum
• Læra reglur og siði
• Læra rétta upphitun
• Læra grunntækni allra högga


B
ÆFING
• Byggt ofan á grunntækni allra högga
• Nemanda kennt að æfa sig rétt
• Hvernig skal æfingartími vera skipulagður
• Líkamsþjálfun, kraftur, úthald og liðleiki
• Hugarþjálfun
• Mataræði


C
Á VELLINUM
• Læra að setja upp og nota leikskipulag
• Undirbúningur fyrir mót eða leikinn hring
• Læra um vanaferli og notkun þess
• Leikgreining og tölfræði
• Rétt kylfuval
• Nota vallarvísir


D
ÁRANGUR
• Færa og fylgjast með forgjöf
• Fara yfir tölfræði hringja
• Fara yfir tölfræði æfinga
• Regluleg endurskoðun markmiða
• Endurskoðun æfingarplans

Boltakort
©2008 Pro Golf ehf. - Gilsbúð 7 - 210 Garðabæ - Sími 555 7200 - Netfang: progolf@progolf.is