Á þessu námskeiði er farið yfir tæknina í púttum, vippum og stuttum innáhöggum. Tekið er próf í stutta spilinu í upphafi og einnig í lokin þar sem nemendum gefst tækifæri á að sjá hversu mikið þeir hafa bætt sig.
64% af öllum golfhöggum eru undir 80 metra högg! Það er því mjög mikilvægt að vera góður í þessum höggum. Á þessu námskeiði er farið yfir tæknina í púttum, vippum, stuttum innáhöggum og höggum úr sandgryfju. Tekið verður próf í stutta spilinu í upphafi og einnig í lokin þar sem nemendum gefst tækifæri á að sjá hversu mikið þeir hafa bætt sig. Boðið verður upp á léttan hádegisverð í golfskálanum í Grafarholti.

“Við hjónin fórum á stuttaspilsnámskeið hjá Pro Golf síðastliðið haust, skömmu fyrir golfferð til Spánar. Námskeiðið gagnaðist okkur afar vel. Við lærðum nokkrar mjög áhrifaríkar æfingar til að vinna með, auk þess sem við náðum að laga ýmsa áunna vankanta. Bæði náðum við að spila á og undir forgjöf í framhaldinu. Ég mæli eindregið með þessu námskeiði.” Þórður H. Hilmarsson og Hjördís Kristinsdóttir.



