Inniaðstaða
Pro Golf hefur komið upp frábærri æfingaaðstöðu innanhúss í Gilsbúð 7 í Garðabæ. Húsnæðið er 270 fermetrar á tveimur hæðum. Á neðri hæðinni eru skrifstofur og fundarherbergi og á efri hæðinni er golfaðstaðan. Þar er tæknibúnaður eins og hann gerist bestur í heiminum í dag.
Hægt er að leigja salinn með öllum tæknibúnaði og golfkennara í eina klst. og kostar kennslustundin kr. 15.000. Einnig er hægt að fá golfleiðbeinanda í stað golfkennara og er þá verðið kr. 12.000. Salurinn hentar mjög vel fyrir 4-6 manna hópa sem hafa áhuga á að æfa tækniatriðin með kennara einu sinni í viku yfir vetrarmánuðina.
Í Gilsbúð er mjög góð æfingaaðstaða fyrir tækniþjálfun og þar er einnig golfhermir að fullkomnustu gerð og hægt að spila þar alla bestu golfvelli heims, m.a. St. Andrews Old Course.
Einkatímar í tækniveri Pro Golf í Gilsbúð standa til boða milli kl. 9 og 15 alla virka daga.
| Verðaskrá á einstökum tímum: Einkatími SAM púttgreining 10.000 kr. Einkatími SCOPE sveiflugreining 10.000 kr. |
![]() |
Íslenska landsliðið og nokkrir golfklúbbar eru nú þegar byrjaðir með afreksæfingar á staðnum og einnig hafa Birgir Leifur Hafþórsson, Ottó Sigurðsson og Heiðar Davíð Bragason, atvinnukylfingar, undirbúið sig þar fyrir keppnina framundan.
Aðstaðan er opin almenningi og þeir sem hafa áhuga geta hringt og pantað tíma í síma 555-7200 eða sent tölvupóst á progolf@progolf.is. Þar geta menn fengið upplýsingar um lausa tíma. Aðstaðan verður starfrækt allt árið.
Tæknibúnaðurinn sem er til afnota á staðnum er:
Sam - Puttlab ( Púttgreining)
Þetta tæki er það allra besta á markaðnum á sviði púttgreininga. Kylfingar fá allar upplýsingar um pútt-tækni sína útprentaðar eða skrifaða á geisladisk til þess að vinna með og hefja æfingar til lagfæringa ef þörf er.
Fullswing - Simulator (golfhermir)
Einn sá besti sinnar tegundar. Kylfingurinn getur staðið innandyra og æft með kennara á æfingasvæðinu og fengið allar upplýsingar um boltaflug og lengdir kylfanna í golfpokanum til þess að bæta nákvæmni sína.
Scope system (Sveiflugreining)
Fremsti sveifluupptökubúnaður sem völ er á í dag, kylfingurinn fær undir eins upplýsingar á skjá fyrir framan sig hvernig síðasta sveifla var og kennarinn sér það sama á öðrum skjá. Kylfingurinn getur fengið allar upptökurnar skrifaðar á geilsadisk til að skoða heima.
Púttflöt og vipp
Púttflötin er lögð með gervigrasi sem hefur alla eiginleika sem náttúrulegt gras hefur. Flötin er 11,0 m.v. stimpmælingu, sem er eins og góð flöt á PGA-mótaröðinni. Einnig er vert að nefna það að flötin er viðurkennd af PGA. Fyrir utan púttflötina er hærra gras og þar er hægt sé að vippa inn á flöt.
Fyrirlestrasalur
Salurinn sem er útbúinn skjávarpa og góðri setaðstöðu er hugsaður fyrir golftengda bóklega fræðslu.




