Um Pro Golf
Fyrirtækið Pro Golf spratt upp úr hugmyndaflæði þriggja golfáhugamanna sem söknuðu þess að hafa ekki inniaðstöðu og tæknilegan aðbúnað til að efla tækni sína og hæfni í golfi. Hugmyndin varð umfangsmeiri og stórtækari með hverjum deginum þar til þessir menn, Brynjar Eldon Geirsson, Gunnar Gunnarsson og Ingimundur Helgason tóku af skarið og stofnuðu þann 19. apríl 2006 golfskóla undir nafninu Pro Golf. Nokkru síðar bættist fjórði eigandinn við, Ólafur Már Sigurðsson.
Markmið eigendanna var að bjóða upp á hágæða golfkennslu með hágæðabúnaði og hágæðakennurum. Pro Golf golfskólanum var valinn staður í Gilsbúð 7 í Garðabæ og voru eigendur fljótir til við að koma upp aðstöðu á efri hæð hússins með áherslu á tæknilega golfþjálfun. Til þess að uppfylla skilyrði til þess, var fjárfest í afar vönduðum tækjum og tölvubúnaði og síðast en ekki síst mjög fullkomnum golfhermi. Golfkennsla hófst í byrjun október 2006.
Starfsemi og markmið
Í desember 2006 myndaðist tækifæri fyrir Pro Golf að útvíkka starfsemi sína með leigusamningi við Golfklúbb Reykjavíkur á Básum sem tók gildi frá og með 1. janúar 2007. Þar með lá beint við að auka og bæta þjónustuna og staðsetja Pro Golf golfskólann einnig í Básum, þar sem í boði eru fjölbreytt námskeið fyrir alla aldurshópa með fagmennsku að leiðarljósi. Pro Golf sér um rekstur Bása, aðstöðu og þjónustu sem er opin öllum einstaklingum og hefur háleitar hugmyndir um öll þau óþrjótandi tækifæri sem bjóðast með aðstöðunni. Það er markmið Pro Golf að koma þeim í framkvæmd með skipulögðum hætti og veita þannig viðskiptavinum þjónustu af bestu gerð. Pro Golf mun hlusta grannt eftir þörfum viðskiptavina og mun leitast við að fella þær þarfir inn í sín markmið. Pro Golf leggur megináherslu á að bjóða viðskiptavinum sínum upp á fyrsta flokks Pro Golf kennara og Pro Golf leiðbeinendur og markvissa hágæða golfkennslu.
Pro Golf starfar fyrst og fremst sem golfskóli og rekstraraðili golfæfingasvæðis en árið 2010 færðist allur búnaður Pro Golf yfir í Bása og skrifstofan á Hólshraun 2, Hafnarfirði.
Kennarar hjá Pro Golf eru: Brynjar Geirsson, Ólafur Már Sigurðsson, Árni Páll Hansson, Davíð Barnwell, Örn Sölvi Halldórsson og Jón Þorsteinn Hjartarson.
Pro Golf golfskólinn
• Er fyrir byrjendur og lengra komna
• Einstaklinga í golfklúbbi eða ekki
• Einstaklinga með skráða forgjöf eða ekki
• Er ætlað að stuðla að golfáhuga meðal fólks og hvetja það þannig til að stunda golf og golfæfingar
• Er ætlað að auka hæfni kylfinga á öllum stigum hæfnisgráðunnar
• Er ætlað að bjóða upp á aðstæður og golfkennslu þar sem kylfingar geta æft golf allt árið
• Býður upp á fjölbreyttar og framúrskarandi aðstæður til golfæfinga
• Býður upp á framúrskarandi golfkennara og æfingakerfi
• Hefur það markmið að hver nemandi nái hámarksárangri
Framtíðarsýn Pro Golf er að starfrækja golfskóla af fagmennsku og heilindum og að viðhalda og þróa hugmyndafræði golfskólans þannig, að hana megi nýta nánast hvar sem er, hérlendis sem erlendis, í þeim tilgangi að efla núverandi og tilvonandi kylfinga.
Aðsetur:
Pro Golf ehf
Gilsbúð 7
210 Garðabæ
Sími: 555 7200
Fax: 555 7201
Netfang: progolf@progolf.is
Kennitala: 590406-0230


