|
Nú hefur fyrirtækið Pro Golf hannað frábært púttæfingatæki fyrir þá sem vilja bæta púttin hjá sér. Tækið heitir Onliner og mun hjálpa kylfingum að miða rétt og byrja boltanum í rétta stefnu. Púttin eru mikilvægasti hluti leiksins og því borgar sig fyrir þá sem vilja ná árangri að eiga Onliner og æfa púttin reglulega. |
|
Onliner hjálpar þér að fá góða tilfinningu fyrir miði.
Onliner hjálpar þér að stilla púttershaus rétt upp í upphafi.
Onliner hjálpar þér að pútta boltanum í rétta stefnu í upphafi.
Onliner er einfaldur í notkun og kemst auðveldlega fyrir í golfpokanum.
Onliner er hægt að nota utan sem innandyra, allan ársins hring, og hentar kylfingum á öllum stigum leiksins.
Hvernig æfir þú með Onliner?
Byrjaðu stutt frá holunni og vísaðu Onliner eftir línunni sem þú hefur valið. Onliner hjálpar þér að miða rétt og lætur þig vita ef þú ert ekki að koma með púttershausinn rétt á boltann. Ef púttershausinn kemur ekki rétt á boltann mun boltinn ekki komast út milli tveggja pinna (einnig hægt að nota tí) sem staðsettir eru á enda tækisins. Þegar þú hefur náð tökum á stuttum púttum getur þú fært þig lengra frá holunni. Þú færð ávallt svörun við því hvort þú sért að pútta boltanum í rétta stefnu.
„Við hönnun Onliner gerðum við okkar allra besta í að búa til einfalt æfingartæki sem aðstoðar leikmenn á öllum stigum leiksins við að skilja púttin sín betur og ná markvissum árangri á flötunum. Það eina sem leikmaðurinn þarf að gera er að æfa sig reglulega með tækinu og árangurinn mun ekki leyna sér.“
Með kveðju
Brynjar Eldon Geirsson, PGA golfkennari
Ólafur Már Sigurðsson, atvinnukylfingur
Brynjar Eldon Geirsson, PGA golfkennari
Ólafur Már Sigurðsson, atvinnukylfingur



