Glæsilegur árangur hjá unglingum GR
Unglingarnir hjá GR náðu glæsilegum árangri á öðru mótinu á Arion banka mótaröð unglinga sem fram fór á Korpúlfstaðavellinum 5. og 6. júní. Unglingar frá GR fögnuðu sigri í þremur af sex flokkum og náðu einnig í fimm silfurverðlaun. Þess má geta að Guðmundur Ágúst Kristjánsson sem sigraði örugglega í piltaflokki setti glæsilegt vallarmet þegar hann lék á 63 höggum á sunnudeginum.
Úrslit:
Lokastaða efstu kylfinga í piltaflokki:
1 Guðmundur Ágúst Kristjánsson GR 69-63--132 -10
2 Guðni Fannar Carrico GR 71-71--142 par
3 Magnús Björn Sigurðsson GR 74-70--144 +2
Lokastaða efstu kylfinga í stúlknaflokki:
1 Karen Guðnadóttir GS 76-81--157 +15
2 Íris Katla Guðmundsdóttir GR 83-78--161 +19
3 Arndís Eva Finnsdóttir GK 85-81--166 +24
Lokastaða efstu kylfinga í drengjaflokki:
1 Bjarki Pétursson GB 75-75--150 +8
T2 Stefán Þór Bogason GR 75-76--151 +9
T2 Ísak Jasonarson GK 79-72--151 +9
T2 Emil Þór Ragnarsson GKG 73-78--151 +9
Lokastaða efstu kylfinga í telpnaflokki:
1 Sunna Víðisdóttir GR 73-73--146 +4
2 Guðrún Brá Björgvinsdóttir GK 76-76--152 +10
3 Anna Sólveig Snorradóttir GK 85-80--165 +23
Lokastaða efstu kylfinga í strákaflokki:
1 Gunnar Smári Þorsteinsson GR 74-72--146 +4
2 Kristinn Reyr Sigurðsson GR 74-75--149 +7
3 Gísli Sveinbergsson GK 76-75--151 +9
Lokastaða efstu kylfinga í stelpnaflokki:
1 Sara Margrét Hinriksdóttir GK 91-85--176 +34
2 Ragnhildur Kristinsdóttir GR 85-98--183 +41
3 Stefanía Elsa Jónsdóttir GA 90-100--190 +48



