facebook

Pro Golf skiptir um mottur í Básum

Pro Golf hefur nú sett nýjar mottur á fyrstu og aðra hæð í Básum. Motturnar voru orðnar árs gamlar og var kominn tími á nýjar mottur. Um er að ræða nýja gerð af mottum sem henta vel til æfinga.

Síðustu daga hafa staðið yfir framkvæmdir á neðstu hæðinni í Básum þar sem aðstaða fyrir viðskiptavini hefur verið betrumbætt. Búið er að loka allri neðstu hæðinni með iðnaðarhurðum og nú geta kylfingar æft sig í upphituðum einkarýmum með opnar dyr út á æfingasvæðið.

Í Básum eru aðstæður eins og þær gerast bestar til golfæfinga í heiminum. Básar eru flóðlýstir og myrkur því engin fyrirstaða æfinga. 78 básar á þremur hæðum og næg bílastæði. 

Þetta er allt hluti af því að bæta þá frábæru æfingaaðstöðu sem Pro Golf  og GR hafa uppá að bjóða.

 

Til Baka

Boltakort
©2008 Pro Golf ehf. - Gilsbúð 7 - 210 Garðabæ - Sími 555 7200 - Netfang: progolf@progolf.is