Pro Golf teppaleggur Bása
Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í Básum undanfarið þar sem búið er að setja upp iðnaðarhurðir á allri neðstu hæðinni svo nú geta kylfingar æft sig í upphituðum einkarýmum með opnar dyr út á æfingasvæðið. Búið er að skipta um mottur á öllum hæðum og nú hefur Pro Golf einnig teppalagt neðstu hæðina í Básum til þess að bæta aðstöðuna enn frekar.











